flugfréttir

Færri farþegar um flugvöllinn í Kaupmannahöfn í maí

- Má rekja til verkfalls flugmanna SAS og kyrrsetningu Boeing 737 MAX

14. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:28

Flugvélar SAS og Thai Airways á flugvellinum í Kaupmannahöfn í febrúar á þessu ári

Færri farþegar fóru um flugvöllinn í Kaupmannahöfn í maí samanborðið við maí í fyrra og er þetta í fyrsta sinn í langan tíma sem að farþegafjöldinn gengur til baka milli ára.

Fækkunina má rekja til verkfalls flugmanna hjá SAS (Scandinavian Airlines) og einnig vegna samdráttar í leiðarkerfinu hjá Norwegian vegna kyrrsetningar á Boeing 737 MAX þotunum en Norwegian er næststærsta flugfélagið sem flýgur um flugvöllinn í Kaupmannahöfn.

Árið 2019 byrjaði vel á Kaupmannahafnarflugvelli og á fyrstu tveimur mánuðum ársins varð 2% fjölgun á farþegum en eftir mars, apríl og maímánuð varð fækkun um 175.000 farþega.

Í maí fóru 2.651.938 farþegar um flugvöllinn í Kaupmannahöfn sem er 3.6% samdráttur frá því í fyrra er 2.750.395 fóru um völlinn.

Gjaldþrot WOW air og Primera Air hefur einnig áhrif

Þá kemur fram að gjaldþrot Primera Air og WOW air hafi einnig áhrif á samdrátt um flugvöllinn í Kaupmannahöfn en áætla má að WOW air hafi flogið með um 14.000 farþega til og frá Kaupmannahöfn í maí í fyrra.

Til samans þá flugu Primera Air og WOW air með 43.000 farþega um flugvöllinn í maí 2018 sem jafngildir 1,6% af heildarumsvifum allra þeirra flugfélaga sem flugu um CPH í þeim mánuði.

Flugvöllurinn sér samt fram á mjög gott sumar þar sem flugfélög eru að hefja flug til nýrra áfangastaða en Norwegian mun byrja að fljúga til Tirana í Albaníu, SAS mun hefja flug til Catania á Sikiley, til Cornwall á Englandi og til Marseille.

Þá mun Wizz Air byrja að fljúga til Köben frá Varna í Búlgaríu og frá Kutaisi í Georgíu og að lokum mun Air France hefja flug frá Toulouse.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga