flugfréttir
Middle East Airlines annað flugfélagið til að panta A321XLR
- Breyta eldri pöntun í Airbus A321neo yfir í fjórar A321XLR
Tölvugerð mynd af Airbus A321XLR í litum Middle East Airlines
Líbanska flugfélagið Middle East Airlines hefur ákveðið að breyta pöntun sinni í Airbus A321neo yfir í nýju Airbus A321XLR þotuna.
Middle East Airlines hafði pantað fjórar Airbus A321neo þotur fyrr á þessu ári sem bættust við pöntun
sem félagið lagði inn til Airbus árið 2017 í ellefu þotur.
Flugfélagið, sem hefur höfuðstöðvar sínar í Beirút, mun taka við fyrstu Airbus A321neo þotunum af fimmtán á næsta ári en þremur árum síðar mun A321XLR koma á markað.
Middle East Airlines ætlar að nota A321XLR þotuna til þess að efla leiðarkerfið sitt í flugi til Afríku
og til Asíu.
Middle East Airlines hefur í dag 18 þotur í flota sínum sem allar eru af Airbus-gerð en flotinn samanstsendur
af þrettán Airbus A320 vélum og fimm Airbus A330-200 breiðþotum.
Félagið á von á 19 þotum frá Airbus á næstu árum; ellefu A321neo þotum, fjórum Airbus A321XLR þotum og fjórum A330-900neo breiðþotum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.