flugfréttir
Airbus fær pöntun í allt að 65 þotur frá Saudi Arabian
- Panta fimmtán eintök af nýju Airbus A321XLR þotunni
Frá undirritun samningsins á flugsýningunni í París í morgun
Saudi Arabian Airlines hefur lagt inn staðfestra pöntun í 30 þotur til Airbus úr Airbus A320neo fjölskyldunni en helmingurinn af þeim þotum verður af nýju gerðinni, Airbus A321XLR.
Fyrir þremur árum síðan lagði Saudia inn pöntun í 35 þotur af gerðinni A320neo og A321neo en félagið
tilkynnti í morgun að það ætli að panta enn fleiri vélar og mun heildarfjöldi pantanna því fara upp
í 65 þotur er kemur að staðfestum pöntunum.
Þá hefur Saudia gert samkomulag um kauprétt á 35 þotum til viðbótar sem þýðir að Saudia á von á allt
að 100 þotum frá Airbus á næstu árum.
Airbus kynnti A321XLR formlega í gær og er framleiðandinn því komin með þrjár pantanir í 46 eintök af þeirri gerð en Aer Lease var fyrsti viðskiptavinurinn
til að panta nýju þotuna og ætlar flugvélaleigan að taka 27 eintök af henni.
Þá ætlar Middle East Airlines að taka fjórar þotur
og Saudi Arabian Airlines ætlar að taka 15 þotur.
Saudi Arabian Airlines er stærsti viðskiptavinur Airbus í Sádí-Arabíu en flugfarþegum hefur farið ört
fjölgandi í landinu og sér félagið fram á mikla aukningu í innanlandsflugi og einnig í flugi til nærliggjandi landa í Miðausturlöndum.
Saudi Arabian Airlines á von á 100 þotum frá Airbus af gerðinni Airbus A321neo, A321LR og A321XLR
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.