flugfréttir
Korean Air pantar 30 Dreamliner-þotur frá Boeing
Korean Air ætlar að bæta við 30 Dreamliner-þotum til viðbótar í flotann sinn
Boeing fékk sína fyrstu pöntun á flugsýningunni í París í morgun á öðrum degi sýningarinnar sem hófst í gær.
Fyrsta pöntunin til Boeing kemur frá Korean Air sem hefur gert samkomulag um að panta þrjátíu
Dreamliner-þotur til viðbótar en félagið sjálft ætlar að taka 10 þotur af gerðinni Boeing 787-9 og tíu
af gerðinni Boeing 787-10.
Þá ætlar Korean Air að taka tíu þotur af gerðinni Boeing 787-10 sem verða teknar á leigu í gegnum
flugvélaleiguna Air Lease Corporation.
„Boeing 787 verður undirstaðan í langflugsflota félagsins til framtíðar“, sagði Walter Cho, forstjóri félagsins við undirritun pöntunarinnar í dag.
„Þessi samningur sýnir hversu sterkt samband við höfum haft við Korean Air í gegnum árin. Flugfélagið
hefur verið brautryðjandi í farþegaflugi og fraktflugi í Asíu sl. fimm áratugi og það er heiður fyrir Boeing
að hafa spilað mikilvægt hlutverk í þeim árangri“, sagði Kevin McAllister, forstjóri og framkvæmdarstjóri
yfir farþegaþotudeild Boeing.
Korean Air hefur því ákveðið að velja Dreamliner-þoturnar fyrir langflugleiðarkerfi sitt um sinn en í október 2018 sagði Cho að félagið væri að gera upp á milli Boeing 787, Airbus A350 og Boeing 777X.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.