flugfréttir
Dönsk flugvélaleiga pantar allt að 100 skrúfuþotur frá ATR
- Pöntun Nordic Aviation Capital hljómar upp á 105 vélar af gerðinni ATR
Nordic Aviation Capital mun fá fyrstu ATR flugvélarnar afhentar á næsta ári en fyrirtækið hefur nú þegar 160 ATR flugvélar í leiguflota sínum
ATR flugvélaframleiðandinn hefur fengið pöntun frá flugvélaleigunni Nordic Aviation Capital (NAC) sem hefur gert samkomulag um að panta allt að 105 skrúfuþotur af gerðinni ATR 42-600 og ATR 72-600.
Samningurinn samanstendur af áformum NAC um að staðfesta pöntun í 35 flugvélar með möguleika á að panta 35 í framhaldi af því og kauprétti á öðrum 35 til viðbótar.
Áformað er að afhendingar á fyrstu 35 flugvélunum hefjist árið 2020 og standi yfir til árisins 2025.
Martin Moller, forstjóri Nordic Aviation Capital, segir að pöntunin, sem fyrirtækið gerði í dag, sé fylgjandi
þeirri stefnu sem er í dag á markaðnum en NAC hefur 160 flugvélar af gerðinni ATR 72 í flota sínum.
NAC leigir einnig út Embraer-þotur, Dash-flugvélar, Airbus A220 þotur auk flugvéla af gerðinni Canadair.
Nordic Aviation Capital er ein stærsta flugvélaleiga í Danmörku með höfuðstöðvar í Billund en fyrirtækið hefur einn stærsta leiguflota af smærri flugvélum fyrir flugfélög sem fljúga stuttar flugleiðir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.