flugfréttir
Færeyingar panta tvær Airbus A320neo þotur til viðbótar
- Atlantic Airways á von á fjórum A320neo þotum frá Airbus og Aer Lease
Christopher Buckley, yfirmaður yfir söludeild Airbus fyrir Evrópu og Afríku, Jóhanna á Bergi, framkvæmdarstjóri Atlantic Airways og Niels Mortensen, stjórnarformaður Atlantic Airways.
Atlantic Airways hefur lagt inn pöntun til Airbus í tvær Airbus A320neo þotur. Um kaup eru að ræða og undirritaði félagið samkomulag þess efnis við forsvarsmenn Airbus á flugsýningunni í París í dag.
Flugfélagið færeyska hefur í dag tvær Airbus A319 þotur í flotanum og eina Airbus A320
en félagið gerði samning við flugvélaleiguna Aer Lease Corporation í febrúar í fyrra um að fá eina Airbus A320neo þotu á leigu.
Átta mánuðum síðar, í október í fyrra, gerði félagið svo samning við Airbus
um að fá aðra A320neo þotu sem tekin verður á leigu.
Með pöntuninni í dag á Atlantic Airways því von á að vera komið með fjórar Airbus A320neo
þotur í rekstur á næstu árum og verður félagið því komið með sjö þotur úr Airbus A320 og A320neo fjölskyldunni.
Atlantic Airways segir í tilkynningu sinni að með þessu ætlar félagið sér að færa út kvíarnar í flugi til meginlands Evrópu en fyrri þotan verður afhent nú frá Airbus árið 2023 og sú seinni árið 2024.
Samkvæmt færeyska dagblaðinu Dagur.fo þá verður fyrsta Airbus A320neo þotan afhent ný til félagsins árið 2023
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.