flugfréttir
Qantas pantar 36 Airbus A321XLR þotur
- Fara bæði í flota Qantas og Jetstar
Tölvugerð mynd af Airbus A321XLR í litum Qantas
Airbus fékk í morgun pöntun frá Qantas Group í Airbus A321XLR þotuna en félagið hefur ákveðið að breyta eldri pöntun í 26 Airbus A320neo þotur yfir í A321XLR auk þess sem félagið ætlar að panta 10 slíkar til viðbótar.
Með því hefur Qantas gert samkomulag um að taka alls 36 eintök af Airbus A321XLR en félagið
mun fá fyrstu þotuna afhenta árið 2024.
„Þessi þota gæti flogið frá Cairns til Tókýó eða frá Melbourne til Singapore, eitthvað sem núverandi
þotur með einum gangi geta ekki gert“, segir Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas, sem bendir
á að með því bjóðist spennandi tækifæri í flugi til Ástralíu sem gerir flugið einnig mun hagkvæmara.
Joyce segir að ekki sé búið að ákveða hvernig þotunum verður skipt niður í flota Qantas og Jetstar
en hann bendir á að bæði flugfélögin, sem eru dótturfélög Qantas Group, gæti haft góð not
af Airbus A321XLR.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.