flugfréttir

ATR kynnir nýja farþegaflugvél sem þarf aðeins 800 metra braut

- Fjórir viðskiptavinir panta 39 eintök af ATR 42-600S flugvélinni

19. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:32

Fjórir viðskiptavinir hafa lagt inn pöntun í 39 eintök af nýju ATR 42-600S flugvélina

Flugvélaframleiðandinn ATR kynnti í morgun klukkan 8 að íslenskum tíma nýja útgáfu af ATR flugvélinni á flugsýningunni í París en í dag er þriðji sýningardagurinn.

Nýja ATR flugvélin kallast ATR 42-600S en
S-ið stendur fyrir STOL og hefur þessi útgáfa þá eiginleika að hún getur lent og hafið sig á loft á stuttum flugbrautum og þarf aðeins 800 metra langa flugbraut.

Stefano Bortoli, framkvæmdarstjóri ATR, segir að ATR 42-600S verði formlega ýtt úr vör fyrir lok ársins og verði hún fjórði meðlimurinn í ATR skrúfuþotufjölskyldunni.

Bortoli segir að framleiðandinn hafi í síðustu viku fengið pöntun frá ónefndum viðskiptavini í 22 eintök af ATR 42-600S en í morgun var tilkynnt um þrjár pantanir til viðbótar á sýningunni.

Írska flugvélaleigan Elix Aviation Capital hefur pantað tíu eintök, þá ætlar flugfélagið Air Tahiti að taka tvær ATR 42-600S flugvélar og einn ónefndur viðskiptavinur hefur lagt inn pöntun í fimm flugvélar af þessari gerð.

ATR 42-600S verður formlega ýtt úr vör fyrir lok ársins

Það var í fyrra sem að ATR byrjaði að leggja drög að því að bjóða upp á útgáfu af ATR 42-600 flugvélinni með því markmiði að draga úr þeirri flugbrautarlengd sem flugvélin þarf úr 1.100 metrum niður í 800 metra langa flugbraut.

Með því opnast dyr fyrir flugfélög til að fljúga á flugvelli sem hafa styttri flugbrautir en gengur og gerist og geta þau félög því þjónað betur fleiri bæjum og byggðarlögum og sérstaklega er kemur að flugi til svæða í fjalllendi og milli eyjaklasa.

Með þessu bætast nokkur hundruð flugvellir við í heiminum sem ATR 42-600S getur flogið til sem hefðbundna útgáfan af ATR 42-600 gæti annars ekki.

ATR 42 vélarnar komu fyrst á markaðinn árið 1984 og hafa verið framleiddar yfir 500 eintök af þeim vélum en ATR 42-600 kom á markað árið 2007.

Stefano Bortoli, framkvæmdarstjóri ATR, kynnir nýju ATR 42-600S flugvélina í morgun á flugsýningunni í París









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga