flugfréttir

Júmbó-fraktþota Cargolux lent í Keflavík með mjaldrana

19. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:08

Boeing 747-400ERF frakþota Cargolux á Keflavíkurflugvelli í dag skömmu eftir lendingu frá Shanghai / Ljósmynd: Andrei Menshenin (Flugblogg.is)

Boeing 747-400ERF vöruflutningaflugvél frá Cargolux lenti á Keflavíkurflugvelli núna klukkan 13:40 eftir langt næturflug frá Shanghai í Kína en um borð eru mjaldrarnir tveir, Little Grey og Little White, sem munu eignast nýtt heimili í Vestmannaeyjum.

Flutningurinn á mjöldrunum tveimur var skipulagður af góðgerðarfyrirtækinu Sea Life Trust í samstarfi við Cargolux en undirbúningurinn á komu þeirra til Íslands hefur staðið yfir í þónokkurn tíma og á meðan fór fram framkvæmdir á sérstaktri hvalalaug í Vestmannaeyjum.

Upphaflega stóð til að flytja hvalina til Íslands í apríl en því var frestað vegna veðurs og erfiðra aðstæðna vegna flutninga sjóleiðina frá landi til Vestmannaeyja.

Flugtíminn frá Shanghai tók 10:30 klukkustundir

Boeing 747-400ERF fraktþotan hóf sig á loft um kl. 3 í nótt að íslenskum tíma og var flogið með þá beint til Íslands en flugtíminn var um 10 klukkustundir og 30 mínútur.

Flugvélin kom að landinu við Skjálfanda í átt að VOR-vitanum AKI en þaðan var stefnan tekin í átt að Vestmannaeyjum þar sem þotan tók einn hring yfir Heimaey í 10.000 fetum áður en hún hélt til Keflavíkur.

Ásamt áhöfnunni eru með í för tveir þjálfarar og dýralæknir sem hafa haft eftirlit með hvölunum um borð í flugvélinni. Á Keflavíkurflugvelli hafa tveir stórir flutningabílar frá TVG-Zimzen beðið hvalanna sem verða fluttir á eftir til Landeyjahafnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga