flugfréttir
Qatar Airways stefnir á að hætta með risaþoturnar
- Fyrsta Airbus A380 fer úr flotanum árið 2024
Airbus A380 risaþota Qatar Airways
Qatar Airways stefnir á að hætta með Airbus A380 risaþoturnar á næstu árum og ætlar félagið að taka þá fyrstu úr flotanum árið 2024.
„Við teljum að risaþotan hafi ekki framtíð fyrir sér í flota Qatar Airways. Við munum byrja að taka þær úr umferð á 10 ára afmælinu þeirra ekki nema að eitthvað óvænt gerist í millitíðinni“, segir Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri félagsins.
Al Baker segir að þetta þýði að fyrsta A380 risaþotan fari úr flotanum eftir 5 ár þar sem hún verður
þá búin að ná 10 ára aldri.
Qatar Airways stefnir á að skipta risaþotunum út fyrir nýjum Boeing 777-9 þotum en félagið hefur tíu A380 risaþotur í flotanum og var sú fyrsta afhent til félagsins árið 2014.
Erfiðlega hefur gengið fyrir Airbus að selja nýjar A380 risaþotur og þá hefur einnig lítið gengið
í endursölu á þeim örfáu risaþotum sem eru fáanlegar á markaðnum. Tvær Airbus A380 þotur, sem
voru áður í flota Singapore Airlines, enduðu í niðurrifi á Spáni þar sem ekki tókst að finna
kaupanda að þeim.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.