flugfréttir

Fyrsta myndbandið af hreyfanlegum vængenda á Boeing 777X

20. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:29

Boeing 777X þotan kemur á markað árið 2020

Boeing hefur birt fyrsta myndbandið sem sýnir hvernig vængendinn á nýju Boeing 777X þotunni hreyfist en þotan, sem er arftaki Boeing 777, kemur með hreyfanlegum vængenda, eða „folding wingtips“.

Vængendinn mun auðvelda aðgengi þotunnar á flughlaði á flugvöllum í samræmi við takmarkanir um vænghaf flugvéla en vænghafið á Boeing 777X er meira en 11 metrum breiðara en á venjulegri Boeing 777-200 þotu og 10 metrum breiðara en á Boeing 777-300ER.

Á myndbandinu, sem er 38 sekúndur á lengd, sést hvernig vængendinn leggst niður úr uppréttri stöðu við prófanir sem fram fóru á Boeing 777-9 tilraunarþotu við verksmiðjurnar í Everett í Washington-ríki.

Með samanbrjótanlegum væng mun vænghaf Boeing 777X dragast saman um 7 metra en flugmenn munu virkja sérstakan búnað með hjörum sem lætur ysta enda vængsins brettast upp þegar vélin kemur að hliði. 

Af öryggisástæðum verður hægt að virkja „folding wingtip“ búnaðinn á Boeing 777X þegar vélin er á jörðu niðri þegar vélin á hraða 90 km/klst hraða eða minna sem samsvarar 50 kts. 

Hjarirnar eru hannaðar með „píanó-laga“ skiptingu til að auka styrk þeirra og mun vökvakerfi vélarinnar sjá um að loka og opna fyrir drifbúnaðinn sem setur vængendann upp og niður. 

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga