flugfréttir
FAA bannar flug yfir Íran
- Vaxandi spenna í landinu eftir að ómannað loftfar var skotið niður
Í NOTAM upplýsingum kemur fram að flug í gegnum Teheran-flugupplýsingasvæðið, yfir Persaflóa og yfir Omanflóa sé bannað vegna vaxandi hernaðaraðgerða og spennu í landinu
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa sent út frá sér fyrirmæli þar sem bandarískum flugfélögum er meinað að fljúga yfir Íran og er jafnframt varað við yfirflugi yfir stóran hluta landsins.
Vaxanda spenna er í landinu eftir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, fyrirskipaði
hefndaraðgerðir gegn Írönum eftir að ómannaður eftirlitsdróni bandaríska hersins
var skotinn niður fyrr í vikunni.
Í NOTAM upplýsingum kemur fram að flug í gegnum Teheran-flugupplýsingasvæðið, yfir
Persaflóa og yfir Omanflóa sé bannað vegna vaxandi hernaðaraðgerða en dróninn var skotinn
niður er hann var í nágrenni við almennar flugleiðir í lofthelginni og hefði flugskeytið því
alveg eins getað verið skotið að farþegaflugvél.
Þrátt fyrir að bannið gildi um bandarískar flugvélar þá eiga tilmælin einnig við flug á vegum
annarra landa þar sem þeim er ráðlagt að fljúga ekki á þeim svæðum sem kemur fram í NOTAM.
Ómannaða loftfarið var af gerðinni Northrop Grumman RQ-4A Block 10 Global Hawk og var það á vegum bandaríska sjóhersins en eitt slíkt loftfar
kostar um 21 milljarð króna.
Áður en FAA sendi frá sér tilkynningu um bannið þá hafði United Airlines þegar hætt
flugi á milli Newark og Bombay eftir að félagið gerði öryggisúttekt á flugleiðinni sem liggur
í gegnum íranska lofthelgi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.