flugfréttir
Flugáætlun Icelandair með Q400 og Airbus A319
- Q400 notuð fyrir flug til Dublin og Manchester
Bombardier Q400 flugvél Air Iceland Connect (TF-FXB) á flugvellinum í Manchester þann 21. maí sl.
Icelandair hefur áform um að nota Bombardier Dash 8 Q400 áfram í millilandaflugi á einstaka flugleiðum til Bretlandseyja í sumar og fram í september.
Q400 vélarnar eru vélar Air Iceland Connect og kemur fram að vélarnar verða notaðar tvisvar í viku
í flugi til Dublin og Manchester en ástæða þess er hagræðing í leiðarkerfi á meðan Boeing 737 MAX vélarnar eru kyrrsettar.
Til Dublin mun Icelandair nota Q400 vélarnar frá 18. júlí næstkomandi fram til 14. september og til Manchester
frá 15. júlí fram til 11. september.
Airbus A319 notuð til 7 áfangastaða í Evrópu
Icelandair hafði áður notað Bombardier Q400 vélar Air Iceland Connect í maí þegar nokkrar flugferðir voru
farnar til Bergen með vélunum.
Þá hefur Icelandair einnig tekið í notkun Airbus-þotu af gerðinni A319 sem tekin er á leigu með áhöfn frá fyrirtækinu GetJet.
Sú þota verður notuð í áætlunarflugi Icelandair í sumar til Billund, Brussel, Genf, Hamborg, Manchester, Osló og til Parísar.
Ítarleg flugáætlun með Airbus A319 er svohljóðandi:
Keflavík - Billund - 1. júlí - 30. júlí (1 til 3 í viku)
Keflavík - Brussel - 20. júlí og 27. júlí (aðeins þessa daga)
Keflavík - Genf - 3. júlí (aðeins þennan dag)
Keflavík - Hamborg - 3. júlí og svo 3 skipti í viku frá 17. - 29. júlí
Keflavík - Manchester - 30. júní - 30. júlí (2-3 í viku)
Keflavík - Osló - 11. júlí - 28. júlí (2 til 3 í viku)
Keflavík - París - 29. júní - 3. ágúst (1 til 3 í viku)
Airbus A319 leiguþotan ber skráninguna LY-KEA / Ljósmynd: Brynjar Hauksson
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.