flugfréttir

Tvær Eurofighter herþotur rákust saman norður af Berlín

- Báðir flugmennirnir náðu að skjóta sér frá borði í fallhlíf

24. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:29

Á myndinni má sjá tvo reykjarmekki stíga til himins í fjarska

Tvær Eurofighter orrustuþotur frá þýska flughernum rákust saman á flugi í hádeginu í Þýskalandi en flugmennirnir náðu báðir að skjóta sér frá borði í fallhlíf.

Herþoturnar rákust saman í norðurhluta Þýskalands nálægt Mecklenburg og hefur myndbandsupptökum verið dreift á samfélagsmiðla sem sýnir tvo svarta reykjarmekki stíga til himins.

Þýska innanríkisráðuneytið segir að herflugmennirnir í báðum orrustuþotunum hafi náð að skjóta sér frá borði en ekki er búið að finna þá og er því ekki vitað um líðan þeirra.

Eldur kom upp í skógi þar sem önnur orrustuþotan kom niður til jarðar

Þriðja Eurofighter-herþotan var með þeim í för og tilkynnti herflugmaðurinn á þeirri þotu um atvikið og að sá hann að báðir flugmennirnir hafi náð að svífa niður til jarðar í fallhlíð.

Atvikið átti sér stað um klukkan 12:00 að íslenskum tíma en báðar flugvélarnar tilheyrðu TLG73 Steinhoff flughersveitinni í Laage og voru þær í æfingarleiðangri ásamt þriðju Typhoon Eurofighter þotunni þegar þær rákust saman.

Flak þotnanna kom niður nálægt Mueritz-vatninu sem er í um 100 kílómetra fjarlægð norður af Berlín og kom upp eldur í skógi á þeim stað þar sem önnur þotan féll til jarðar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga