flugfréttir
Bombardier selur CRJ-framleiðsluna til Mitsubishi
- Stefna á að hætti framleiðslu á farþegaþotum á næstu árum
Bombardier mun halda áfram að sjá um samsetningu á CRJ700, CRJ900 og CRJ1000 þotunum eftir kaupin
Kanadíski flugvélaframleiðandinn hefur selt framleiðsluna á CRJ þotunum yfir til japanska flugvélaframleiðandans Mitsubishu Heavy Industries sem framleiðir m.a. nýju MRJ þotuna sem fengið hefur nafnið Space Jet.
Bombardier hefur séð um framleiðslu á CRJ700, CRJ900 og CRJ1000 þotunum
frá því framleiðandinn tók yfir framleiðslunni frá Canadair árið 1986.
Samningur um kaupin var undirritaður í dag af forsvarsmönnum
Bombardier og Mitsubishi Heavy Industries og eru kaupin metin
á 68 milljarða króna.
Bombardier mun halda áfram að sjá um framleiðsluna á CRJ þotunum
í verksmiðjunum í Mirabel í Québec en Mitsubishi mun taka yfir viðhald- og
viðgerðarþjónustuna og sölu- og markaðsdeildinni.
Bombardier stefnir á að draga sig algjörlega í burtu af markaðnum er kemur
að framleiðslu á farþegaþotum en fyrirtækið seldi í fyrra framleiðsluna á
CSeries-þotunum yfir til Airbus sem hefur endurnefnt flugvélarnar sem í dag
heita Airbus A220.
Þá seldi Bombardier framleiðsluna á Dash 8 Q400 vélunum til Viking Air
árið 2018 en það fyrirtæki hafði tekið yfir þeirri framleiðslu árið 2016.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.