flugfréttir
Dótturfélag Air France leggur árar í bát
- Joon flaug sitt fyrsta flug fyrir 18 mánuðum síðan
Airbus A321 þota flugfélagsins Joon
Franska lágfargjaldafélagið Joon mun ljúka starfsemi sinni í kvöld eftir aðeins 18 mánaða rekstur en síðustu áætlunarflug félagsins lenda í kvöld á Charles de Gaulle flugvellinum París eftir flug frá Róm og Prag.
Joon er sennilega yngsta flugfélag Frakklands sem hefur lagt árar í bát en félagið náði ekki tveggja
ára aldri og er talið að breiðþoturekstur hafi orðið félaginu að falli.
Joon var dótturfélag Air France og flaug félagið sitt fyrsta flug þann 1. desember árið 2017.
Markaðsetning félagsins átti að beinast að yngri kynslóðinni og var markhópurinn fólk á aldrinum 18 til 35 ára sem notast við stafræna miðla en nafn félagsins er dregið
af franska orðinu „jeune“ sem þýðir „ungur“.
Frá fyrsta flugi félagsins til Seychelles-eyja í desember í fyrra
Félagið byrjaði með ódýr flug með Airbus A320 þotum frá París til Barcelona, Berlínar, Lissabon og Porto
sem voru fyrstu áfangastaðir félagsins.
Joon hafði sextán þotur í flota sínum; ellefu af gerðinni Airbus A320 og Airbus A321 og þá var
fimm Airbus A340 breiðþotum bætt í flota félagsins sem hafa flogið langflug frá París
til St. Maarten, Höfðaborgar, Bombay og til Seychelles-eyja í Indlandshafi.
Airbus A340 breiðþota Joon í lendingu á flugvellinum í St. Maarten
Félagið náði sér aldrei almennilega á strik m.a.v. þær væntingar sem Air France
gerði til nýja lágfargjaldafélagsins sem átti að etja kappi við stóru lágfargjaldafélögin í Evrópu og þá sérstaklega
eftir að félagið hóf að fljúga breiðþotum til fjarlægra áfangastaða en upphaflega stóð til að etja kappi við félög á borð við easyJet, Ryanair og Transavia.
Hugmyndir félagsins um að ná til unga fólksins náðu ekki fram að ganga og strax í janúar á þessu
ári var farið að gera áform um að hætta rekstrinum og sameina félagið aftur inn í Air France
ásamt þeim 600 starfsmönnum sem störfuðu fyrir Joon.
Farþegarýmið í flugvélum Joon var hannað til að höfða til ungs fólks
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.