flugfréttir

FAA kemur auga á nýtt atriði sem þarf að laga á 737 MAX

- Uppgötvaðist við prófanir í flughermi í seinustu viku

26. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 21:21

Kyrrsettar Boeing 737 MAX þotur í flota American Airlines

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa komið auga á nýtt atriði varðandi Boeing 737 MAX þoturnar sem þarf að lagfæra áður en hægt er að aflétta kyrrsetningu vélanna.

Ekki kemur fram hvers eðlis atriðið er en upp komst up það þegar verið var að framkvæma prófanir í Boeing 737 MAX flughermi og kemur fram að um „mögulega áhættu“ sé að ræða sem þarf að leysa.

Hlutabréf í Boeing féllu í dag um 1% við þessar fréttir en FAA hefur tilkynnt Boeing að nauðsynlegt sé að laga þessi nýju atriði ef flugvélin á að fá leyfi til að fljúga á ný með þeim fyrirvara að einnig sé búið að greiða götuna varðandi vandamál með MCAS-kerfið sem Boeing hefur þegar komið með lausn á.

„FAA er að vinna eftir ákveðnu ferli til að koma Boeing 737 MAX aftur í umferð. Kyrrsetningunni verður aflétt um leið og við sjáum að það sé öruggt. Ferlið okkar hefur miðast af því að fara yfir önnur atriði og sjá hvort við séum að uppgötva eitthvað annað sem er ekki eins og það á að vera og nýlega komum við auga á nokkuð sem Boeing þarf að laga“, segir talsmaður FAA.

Talsmaður Boeing segir að öryggi sé ávalt í hæsta forgangi og sé framleiðandinn að vinna í nánu samstarfi með FAA að því að koma MAX-vélunum aftur í umferð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga