flugfréttir
Fór út af í lendingu í Rússlandi og hafnaði á byggingu
- Tveir létu lífið af 46 sem voru um borð
Frá vettvangi í morgun á flugvellinum í Nizhneangarsk
Tveir létu lífið er rússnesk farþegaflugvél af gerðinni Antonov An-24RV klessti á byggingu eftir að vélin fór út af flugbraut í lendingu í borginni Nizhneangarsk við Baikal-vatn í austurhluta Rússlands í morgun.
Flugvélin, sem er tveggja hreyfla farþegavél frá flugfélaginu Angara Airlines, var í innanlandsflugi með
43 farþega innanborðs og fjögurra manna áhöfn á leiðinni frá Ulan-Ude
til Nizhneangarsk og kemur fram að áhöfn vélarinnar hafði lýst yfir neyðarástandi skömmu fyrir slysið.
Á upptökum úr öryggismyndavélum kemur fram að flugvélin hafi sveigt
til hægri út af brautinni, farið í gegnum grindverk og hafnað á vegg á skólphreinsistöð.
Allir farþegarnir komust frá borði auk tveggja áhafnarmeðlima en tveir
í áhöfn lifðu slysið ekki af
Eldur kom upp í vélinni og náðu allir farþegarnir að koma sér frá borði
auk tveggja áhafnarmeðlima en flugstjórinn og einn flugvirki lifðu slysið
hinsvegar ekki af.
Slysið átti sér stað um klukkan hálf þrjú í nótt að íslenskum tíma eða um
10:30 að staðartíma. Ekki er vitað um hvernig veður var á flugvellinum er
slysið átti sér stað en út frá myndabandsupptökum að dæma þá er talið að
veður hafi verið gott.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.