flugfréttir
Air Canada kaupir Air Transat
Flugvélar Air Canada og Air Transat
Tilkynnt hefur verið að Air Canada muni festa kaup á kanadíska flugfélaginu Air Transat en félögin hafa átt í viðræður um kaupin frá því í maí.
Tilkynnt var um samkomulag um kaupin í dag og mun Air Canada kaupa allan hlut í Air Transat
með fyrirvara um að hluthafar samþykki viðskiptin.
Air Transat er þriðja stærsta flugfélag Kanada á eftir WestJet sem er 2. stærsta flugfélag landsins en Air Transat
var stofnað árið 1986. Félagið hefur 38 þotur í flota sínum og hefur félagið flogið til 60
áfangastaða í 25 löndum.
Flugfélögin tvö tilkynntu í maí að þau ættu í viðræðum vegna sameiningar sem myndu standa yfir í 30
daga og var loks tilkynnt í morgun að Air Canada myndi kaupa Air Transat fyrir 64 milljarða króna.
Fram kemur að félögin tvö verða rekin í sitthvoru lagi og áfram undir sömu merkjum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.