flugfréttir

Deilur um þrif á nestisboxi flugstjórans olli seinkun á flugi

- Air India ætlar að banna flugmönnum að taka með sitt eigið nesti í flug

28. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:52

Atvikið átti sér stað þann 17. júní sl. á flugvellinum í Bengaluru á Indlandi

Töluverð seinkun varð á einu áætlunarflugi hjá Air India mánudaginn 17. júní sl. eftir að agreiningur kom upp vegna nestisbox sem annar flugmaðurinn hafði meðferðis.

Fram kemur í indverskum fréttum að flugmaðurinn hafi beðið einn áhafnarmeðliminn um að þrífa nestisboxið sitt eftir að hann var búinn að borða skömmu fyrir brottför frá borginni Bengaluru.

Áhafnarmeðlimurinn hafði ekki áhuga á að þrífa nestisboxið hans og móðgaðist í kjölfarið sem varð til þess að illindi blossuðu upp og þurfti að seinka fluginu vegna þessa um á aðra klukkustund.

Talið er að málið gæti orðið til þess að Air India eigi eftir að banna flugmönnum að mæta með sitt eigið nesti til vinnu en stjórn flugfélagsins kallaði báða aðila inn á teppið til sín í kjölfarið í höfuðstöðvum í Delhí.

„Við lítum atvikið, sem átti sér stað sl. mánudag, alvarlegum augum og mögulega munum við biðja flugmenn um að sleppa því að mæta um borð með sinn eigin mat“, segir í tilkynningu.

Fram kemur að það hafi verið flugstjóri sem hafi beðið eina flugfreyju um að þrífa nestisboxið og hafi næstum komið til handalögmála milli þeirra vegna ágreiningsins. 77 mínútna seinkun varð á fluginu þar sem kalla þurfti til aðra flugfreyju í stað hennar en flugvélin var á leið til Kalkútta.

Yfirflugþjónn hjá Air India sagði í viðtali við indverska fjölmiðla að atvik sem þessi eru alls ekki svo sjaldgæf þar sem flugstjórar eru oft að biðja flugfreyjur og flugþjóna um hluti sem þeim fellur ekki í geð eða koma með séróskir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga