flugfréttir
Gulfstream G600 einkaþotan fær vottun frá FAA
Gulfstream G600 einkaþotan
Flugvélaframleiðandinn Gulfstream Aerospace hefur fengið lofthæfisvottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) fyrir Gulfstream 600 einkaþotunni.
Með því getur framleiðandinn byrjað að afhenda fyrstu eintökin til viðskiptavina sinna en framleiðslan
á G600 einkaþotunni var ýtt úr vör árið 2014 á sama degi og Gulfstream G500 en G600 flaug sitt
fyrsta flug þann 17. desember árið 2016.
Bæði G600 og G500 eru tveggja hreyfla einkaþotur af stærri gerðinni en G600 hefur flugdrægi upp á 12.040 kílómetra (6.500 nm),
langflugshraða upp að Mach 0.90 og tekur hún allt að 19 farþega með hámarksflugtaksþunga upp á 41 tonn.
Fjórar tilraunaþotur af G600 gerðinni hafa flogið í dag 3.200 flugtíma í loftinu auk þess sem framkvæmdar
hafa verið prófanir í tæpar 100.000 klukkustundir í tilraunastofu.
Gulfstream G600 kemur með tíu snertiskjám í stjórnklefa, Symmetry Flight Deck stjórnkerfi en þotan
hefur meðal annars hlotið Private Jet Design verðlaunin árið 2018 á Yacht & Aviation verðlaunahátíðinni
fyrir frammúrskarandi hönnun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.