flugfréttir
Laumufarþegi féll til jarðar í aðflugi að Heathrow
- Líkið féll í húsagarð í Lamberth-hverfinu í miðborg London
Boeing 787-9 þota Kenya Airways á Heathrow-flugvellinum í London
Lík laumufarþega féll til jarðar frá farþegaþotu frá Kenya Airways er þotan var í aðflugi að Heathrow-flugvellinum í London sl. sunnudag.
Líkið hafnaði í garði í hverfinu Lambeth í suðurhluta London rétt fyrir klukkan fjögur að staðartíma
en flugvélin, sem er af gerðinni Boeing 787-9, var að koma frá Nairobi, höfuðborg Kenýa.
Talið er að laumufareginn hafi komist upp undir hjólarýmið og hafi hann ætlað að koma sér
þannig til Bretlands en langflestir þeirra sem hafa ætlað að lauma sér með þeim hætti um borð í flugvélar hafa
látist sökum súrefnisskorts eða frosið til dauða.
Það var íbúi sem hringdi og lögregluna og kemur fram að líkið hafi verið af karlmanni og er unnið
að því að bera kennsl á hinn látna.
Þá komu flugvallarstarfsmenn á Heathrow auga á bakpoka, vatnsflösku og mat í hjólarýminu eftir
laumufarþeginn en flugvélin fór aftur til baka til Nairobi samkvæmt áætlun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.