flugfréttir
Airbus hættir að birta listaverð á nýjum þotum
- Boeing hefur birt uppfærðan lista fyrir árið 2019
Nýsmíðaðar farþegaþotur fyrir framan samsetningarsal Airbus í Toulouse
Airbus ætlar að hætta að birta formlegan verðlista fyrir þær flugvélar sem framleiðandinn smíðar eins og gert hefur verið í mörg ár.
„Það er eiginlega tilgangslaust í dag að vera að birta lista sem sýnir verð á nýjum flugvélum“, segir Christian Scherer, nýr fjármálastjóri Airbus, sem tekur fram að fólk
hafi sennilega tekið eftir að Airbus hefur birt nýjustu uppfærðan lista fyrir árið 2019 á meðan Boeing hefur birt sinn verðlista.
Flestir vita að þau kjör sem flugfélög fá þegar pantaðar eru nýjar flugvélar er oft langt frá því verði
sem birt er á verðlistanum þar sem þau fá flest veglegan afslátt af uppgefna verðinu en slíkur afsláttur getur náð allt að 50% af listaverði ef um stóra pöntun er að ræða.
Verðlistinn hefur þó þann tilgang að hægt er að miða við uppgefið verð þegar verið er að reikna út
afslátt og hafa margir notað þann lista til að bera saman verð á þotum frá Boeing og Airbus.
Þá hafa flugvélaframleiðendur einnig notað listann til að reikna út hversu háa upphæð
þau vilja að flugfélög greiði inn á patnanir áður en fyrstu flugvélarnar eru afhentar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.