flugfréttir

Somon Air hættir við 737 MAX

- Segja fátt jákvætt eftir í umræðunni um Boeing 737 MAX

3. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 11:17

Somon Air hefur sex Boeing 737 þotur í flota sínum

Flugfélagið Somon Air ætlar að hætta við pöntun sína í Boeing 737 MAX en félagið átti inni pöntun hjá flugvélaleigunni Air Lease Corporation í eitt eintak af þotunni sem félagið ætlaði sér að nota í áætlunarflugi.

Thomas Hallam, framkvæmdarstjóri Somon Air, segir að stjórn félagsins hafi tekið eftir því að traust fólks á þotunni hafi dvínað töluvert sem var ástæða þess að þessi ákvörðun var tekin.

„Stjórnin hafði heyrt ýmsa hluti og ekkert að því var á jákvæðum nótum. Ég er ekki tilbúin að halda áfram fyrr en flugvélin er komin aftur í loftið og hefur öðlast einhverja reynslu“, segir Hallam.

Pöntunin mun ekki hafa nein teljandi áhrif á pantanirnar hjá Boeing þar sem aðeins um eina þotu er að ræða en yfirlýsingin um ákvörðunina undirstrikar vaxandi óánægju með flugvélaframleiðandann og árangur hans um að koma flugvélinni aftur í loftið með skjótum hætti og sérstaklega þar sem ekki hefur verið gefin út nein dagsetning varðandi hvenær það verður.

Somon Air, sem hefur höfuðstöðvar sínar í Dushanbe í Tajikistan, hefur sex þotur í flota sínum af gerðinni Boeing 737-300, -800 og Boeing 737-900ER.

Sagt var að félagið ætlaði sér að vera eingöngu með Boeing 737 MAX þotur innan fárra ára en þessi ákvörðun mun breyta þeirri stefnu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga