flugfréttir

Borgarstjóri vill að Emirates fái leyfi til að fljúga til Berlínar

3. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 17:02

Risaþotur Emirates og Lufthansa

Borgarstjóri Berlínar hefur boðað til fundar varðandi loftferðasamning milli Þýskalands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna en borgarstjórinn vill að Emirates fái leyfi til þess að fljúga til Berlínar.

Samkvæmt núverandi loftferðasamningi milli landanna tveggja þá hefur Emirates leyfi til þess að fljúga til fjögurra borga í Þýskalandi sem eru Munchen, Frankfurt, Hamborg og Dusselsdorf.

Ef Emirates vill hefja flug til Berlínar þá þarf félagið að hætta flugi til eins áfangastaðar til að fara ekki yfir hámark þeirra borga sem félagið flýgur til í landinu.

„Þar sem eftirspurnin hefur aukist þá þjónar það engum tilgangi að vera með skorður á Emirates“, segir Michael Müller, borgarstjóri Berlínar, sem tekur fram að Berlínarborg styðji Emirates um að hefja flug til borgarinnar án þess að þurfa að leggja niður flug í staðinn til annarra borga.

Müller segir að ástæða þess að takmark sé á núverandi loftferðasamningi sé tilkomin vegna ótta þýska ríkisins um að Lufthansa myndi missa viðskipti sín vegna þeirra umsvifa sem Emirates hefur.

Müller segir það ekki þjóna tilgangi þar sem Lufthansa hefur ákveðið að leggja áherslu á flug til Evrópu og á stuttum leiðum frá Berlín og draga úr flugi til fjarlægra áfangastaða.

Talsmaður Emirates segist vonast til þess að félagið fái leyfi til þess að fljúga til Berlínar á næstunni þar sem Þýskaland er annar stærsti markaður félagsins í Evrópu á eftir Bretlandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga