flugfréttir
Boeing mun greiða 12 milljarða króna til aðstandenda
Boeing 737 MAX þotur fyrir frama verksmiðjur Boeing í Renton
Boeing mun greiða yfir 12 milljarða króna í bætur til fjölskyldna og aðstandenda þeirra sem létust í flugslysunum tveimur hjá Ethiopian Airlines og Lion Air en alls voru 346 sem týndu lífi í slysunum tveimur.
Þetta tilkynnti flugvélaframleiðandinn fyrr í dag en upphæðin verður lögð inn á reikning hjá aðilum og samtökum í Eþíópíu og í Indónesíu sem sinna góðgerðarmálum og verður fjárhæðin þaðan greidd til aðstandenda en hún verður greidd út í hlutum sem dreifist yfir nokkur ár.
Styrkurinn er ætlaður til þess að standa straum af daglegu lífi þeirra sem misstu ástvini í slysunum auk þess sem hann mun renna til menntunar auk uppihalds.
„Við hjá Boeing hörmum þann missi sem varð í slysunum tveimur og þessi mannslíf munu halda áfram að snerta
hjörtu okkar um ókomna framtíð“, segir Dennis Muilenberg, framkvæmdarstjóri Boeing.
Talsmaður Boeing segir að þær fjölskyldur, sem fá greidda styrki frá framleiðandanum, munu einnig geta notað féið til
þess að höfða mál gegn Boeing og standa straum af lögfræðikostnaði.
Muilenberg segir að þótt að Boeing sé að taka skref í rétta átt með þessu þá sé þetta aðeins byrjunin. Afleiðing
flugslysanna tveggja hafa leikið Boeing grátt og kemur fram í frétt Bloomberg fréttaveitunnar að
flugvélaframleiðandinn sé að ganga í gegnum mestu erfiðleika í 103 ára sögu Boeing.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.