flugfréttir
Segja að þrjár flugvélar hafi „horfið“ úr flota Air Zimbabwe
- Flugfélagið vísar ásökunum á bug og segja vélarnar inni í skýli
Flugvélarnar þrjár sem fjölmiðlar í landinu hafa sagt að séu týndar eru af gerðinni Xian MA60
Flugfélagið Air Zimbabwe hefur vísað á bug fréttum um að þrjár flugvélar í flota félagsins séu týndar og að þær hafi horfið frá flugvellinum í Harare þar sem félagið hefur höfuðstöðvar sínar.
Um er að ræða þrjár flugvélar af gerðinni Xian MA60 sem eru tveggja hreyfla flugvélar með skrúfumótor
sem smíðaðar eru í Kína en ríkisendurskoðandi í Zimbabwe segir að félagið hafi ekkert minnst á þessar þrjár
vélar í uppgjöri sínu.
Fréttamiðillinn Daily News í Zimbabwe greindi frá því sl. sunnudag að þrjár flugvélar væru horfnar úr
flota félagsins en talsmaður Air Zimbabwe sagði í viðtali á mánudag að það væri rangt og að þessar þrjár vélar
væru allar úr umferð tímabundið þar sem þær eru skráðar „bilaðar“ vegna skorts á pappírum.
„Þetta er léleg fréttamennska. Flugvélarnar eru hérna og öllum er frjálst að koma og sjá þær. Það sem er týnt
eru nokkur skjöl er varðar lofthæfi þeirra sem eru enn hjá ríkisstjórninni sem átti flugfélagið en ekki hjá nýjum
eigendum félagsins“, segir talsmaður Air Zimbabwe.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.