flugfréttir
Vinna að lausn á nýja gallanum á Boeing 737 MAX
Boeing 737 MAX þoturnar hafa verið kyrrsettar í tæpa 4 mánuði
Boeing hefur komið með yfirlýsingu varðandi nýja gallann á Boeing 737 MAX sem starfsmenn hjá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) komu auga á þegar verið var að gera prófanir á nýrri uppfærslu á MCAS-búnaði flugvélanna á dögunum í flughermi.
Nýi gallinn varðar örgjörva í tölvubúnaði sem tengist hæðarstýri vélanna og snýst vandamálið um að mögulega
gætu flugmenn átt í erfiðleikum með að bregðast fljótt við að ná stjórn á vélinni ef stýrisstilling („stabilizer trim“) fer að virka
með óeðlilegum hætti.
Dennis Muilenberg, framkvæmdarstjóri Boeing, segir að framleiðandinn sé að grípa til aðgerða til að laga þetta
vandamál og sé verið að vinna að lausn á hugbúnaði en Muilenberg tók ekki fram hvort að þessi nýi galli
muni seinka því enn frekar að Boeing 737 MAX geti farið að fljúga á ný.
„Öryggi farþega og flugvélarinnar er í fyrsta forgangi hjá okkur og við munum taka þann tíma sem við þurfum
til að tryggja að Boeing 737 MAX komist aftur í umferð með öruggum hætti“, segir Dennis Muilenberg á Twitter-síðu
sinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.