flugfréttir
Fyrirmæli vegna möguleika á sprungum í vængjum á A380
- Flugfélögum gert að framkvæma skoðanir á 25 elstu risaþotunum
Fyrirmælin frá EASA ná til 25 risaþotna sem voru með þeim fyrstu sem smíðaðar voru
Flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) hafa gefið út fyrirmæli þar sem nokkrum flugfélögum er gert að framkvæma skoðanir á alls 25 Airbus A380 risaþotum í kjölfar þess að sprungur uppgötvuðust í væng á nokkrum þotum.
Fyrirmælin voru birt þann 5. júlí sl. og kemur fram að nauðsynlegt er að fram fari skoðun
vegna möguleika á sprungum á ákveðnum svæðum í þverbitum inn í væng vélanna og er um
að ræða þotur sem framleiddar voru með þeim fyrstu tuttugu og fimm sem komu út úr verksmiðjunum
í Toulouse á sínum tíma.
Ástæðan er sú að tilkynnt hefur verið um sprungumyndanir á elstu vængjunum sem
smíðaðir voru en þær risaþotur sem skyldugar eru til að fara í skoðun er risaþotur í flota
Hi Fly (All Nippon Airways, Emirates, Singapore Airlines, Qantas, Lufthansa og Air France.
Ef ekki verður gripið til skoðunar og viðeigandi ráðstöfunar gæti það valdið því að
burðargeta vængsins gæti skerst en EASA mun birta frekari fyrirmæli á næstunni varðandi
málið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.