flugfréttir

552.000 farþegar flugu með Icelandair í júnímánuði

9. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 09:13

TF-FIS („Grímsvötn“), Boeing 757-200 þota Icelandair í lendingu á flugvellinum í Kansas City

Aldrei hafa eins margir farþegar flogið með Icelandair í júnímánuði líkt og seinast þegar 552.790 farþegar flugu með félaginu sem er í fyrsta sinn sem farþegafjöldinn fer yfir hálfa milljón í júní.

Þetta er aukning upp á 15 prósent samanborið við júní 2018 þegar 480 þúsund flugu með félaginu og þá flugu einnig fleiri með félaginu í júní heldur en í ágúst í fyrra sem var annasamasti mánuður ársins.

Sætanýtingin var 88% samanborið við 84,4% í júní í fyrra og þá var framboð á flugsætum aukið um 8 prósent.

Farþegum fjölgaði verulega bæði til og frá Íslandi – um 41% til Íslands, sem nam um 61 þúsund farþegum, og um 27% á heimamarkaðinum frá Íslandi, sem nam tæplega 15 þúsund farþegum, en þessi aukning er meðal annars vegna áherslu félagsins á að lágmarka áhrif kyrrsetningar Boeing 737 MAX véla félagsins og breytinga í samkeppnisumhverfinu á markaðina til og frá Íslandi.

Atlantshafsmarkaðurinn var stærsti markaður félagins í júní með 49% af heildarfarþegafjölda og dróst fjöldi skiptifarþega lítillega saman á milli tímabila, eða um 1%. Komustundvísi í leiðarkerfi félagsins í júní nam 64% samanborið við 40% í júní á síðasta ári en góður árangur hefur náðst í að bæta stundvísi þrátt fyrir minni sveigjanleika í flugáætlun félagsins vegna kyrrsetningar MAX véla félagsins.

Samdráttur í innanlandsflugi

Farþegar Air Iceland Connect voru 25 þúsund í júní og fækkaði um 13% sem er í takt við samdrátt í framleiðslu á milli ára. Sætanýting nam 72,3% og jókst um 2,7 prósentustig á milli ára.

Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 15% milli ára vegna færri verkefna en á sama tíma í fyrra og viðhalds flugvéla. Fraktflutningar jukust um 5%. 







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga