flugfréttir

Flapi losnaði af Boeing 747 í aðflugi og féll til jarðar

- Losnaði af fraktþotu KLM Cargo í aðflugi að Harare í Zimbabwe í gær

9. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 09:45

Flapinn losnaði af í aðflugi að flugvellinum í Harare eftir flug frá Jóhannesarborg í gær

Rannsókn stendur nú yfir á atviki sem átti sér stað í gær er flapi losnaði af júmbó-fraktþotu af gerðinni Boeing 747-400ERF frá KLM Cargo.

Þotan var í aðflugi í um 30 kílómetra fjarlægð suðaustur af flugvellinum í Harare, höfuðborg Zimbabwe, þegar stór hluti af flapabúnaði á öðrum væng vélarinnar losnaði og féll til jarðar.

Talsmaður KLM segir að flapinn hafi fundist í útjaðri höfuðborgarinnar og er tekið fram að engan sakaði og einnig að flugvélin hafi lent vandræðalaust samkvæmt áætlun.

Eins og sjá má er flapi af júmbó-þotu engin smá smíði

Samkvæmt upplýsingum er um að ræða þotu sem hefur skráninguna PH-CKA sem var afhent til Martinair Cargo sem annast flug vélarinnar fyrir hönd KLM Cargo en þotan var smíðuð árið 2003.

Á meðfylgjandi myndum má sjá starfsmann á vegum flugmálayfirvalda í Zimbabwe að störfum á vettvangi við flapann sem losnaði og kemur fram að hann hafi komið niður nálægt bænum Chitungwiza.

Aðeins eru 10 mánuðir frá því að flapi losnaði seinast af júmbó-fraktþotu sömu gerðar sem átti sér stað í september í fyrra er Boeing 747-400ERF þota frá MyCargo Airlines (Saudia Cargo) var í aðflugi að flugvellinum í Frankfurt í Þýskalandi.

Við skoðun eftir lendingu kom í ljós að raufung vantaði á fremri vængbrún vélarinnar en stykkið fannst ekki í kjölfar atviksins.

Fleiri myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga