flugfréttir
Gera ráð fyrir að kyrrsetning 737 MAX vari út október
- Breytingar á flugáætlun til loka október vegna kyrrsetningar Boeing 737 MAX
TF-ICY (Látrabjarg) á flugvellinum í Montréal í júní í fyrra
Icelandair hefur uppfært flugáætlun sína er varðar Boeing 737 MAX þoturnar og gerir félagið ekki ráð fyrir þeim í leiðarkerfinu fyrr en í fyrsta lagi í byrjun nóvember þar sem útlit er fyrir að kyrrsetning vélanna mun vara lengur.
Icelandair hefur bætt við fimm leiguflugvélum í flota sinn í sumar til að lágmarka þau
áhrif sem kyrrsetning Boeing 737 MAX vélanna hefði annars haft á reksturinn en félagið
hefur fengið 5 þotur afhentar en þrjár af þeim höfðu þegar verið í áætlunarflugi þegar kyrrsetningin
tók í gildi í mars.
Leigusamningar tveggja þessara véla renna út í lok ágúst en þrjár verða í rekstri hjá félaginu út september.
Unnið er að því að útfæra framlengingu leigusamnings einnar vélar út október en við þessar breytingar dregst sætaframboð félagsins á tímabilinu 16. september til 26. október
saman um 4% frá því sem áður var áætlað.
Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að félagið hafi lagt megináherslu á fjölgun farþega á mörkuðunum til og frá Íslandi og hefur félagið
aldrei flutt fleiri farþega til Íslands en það sem af er sumri eða 354 þúsund farþega í maí og júní samanborið við 257 þúsund á
sama tímabili í fyrra. Þá eru bókanir á markaðinum til Íslands á tímabilinu júlí til október rúmlega 20% fleiri en á sama tímabili í fyrra.
Vinna varðandi þessar breytingar mun hefjast á næstu dögum og munu starfsmenn Icelandair hafa samband við viðkomandi farþega.
Fjárhagsleg áhrif kyrrsetningarinnar eru enn óviss á þessu stigi, m.a. vegna þess að ekki liggur fyrir hversu mikið af þeim kostnaði sem hlýst af kyrrsetningunni fæst bættur frá framleiðanda.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.