flugfréttir
Sækja um leyfi fyrir flugi milli Argentínu og Bandaríkjanna
Boeing 737-800 þota Norwegian Air Argentina
Norwegian hefur sótt um leyfi fyrir hönd argentínska dótturfélagsins, Norwegian Air Argentina, fyrir áætlunarflugi milli Argentínu og Bandaríkjanna.
Félagið sækir um leyfið aðeins tveimur vikum eftir að stjórnvöld í Bandaríkjunum og Argentínu
undirrituðu nýjan tvíhliða loftferðasamning ríkjanna um flug milli landanna tveggja.
Norwegian Air Argentina hefur í dag höfuðstöðvar á tveimur flugvöllum í Argentínu í Buenos
Aires og í Córdoba og flýgur félagið til fimm áfangastaða í landinu í innanlandsflugi en
í september munu fimm borgir til viðbótar bætast við leiðarkerfið.
Þá hafa flugmálayfirvöld í Argentínu einnig gefið Norwegian Air Argentina leyfi til þess að
hefja flug frá Buenos Aires til Perth í Ástralíu og einnig til Singapore.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.