flugfréttir
Delta segir formlega skilið við Boeing eftir 50 ára viðskipti
- Síðasta Boeing þotan afhent - Eiga von á yfir 260 nýjum þotum frá Airbus
Airbus A350 þota Delta Air Lines á flugvellinum í Atlanta en félagið valdi A350 og hafnaði tilboði í Boeing 777 á sínum tíma
Eftir að hafa verið viðskiptavinur Boeing í 50 ár og fengið reglulega nýjar flugvélar frá framleiðandanum frá sjöunda áratug síðustu aldar þá mun Delta Air Lines ekki fá fleiri þotur eftir að síðasta Boeing 737-900ER þotan var afhent til félagsins á dögunum.
Segja má að Delta hafi hægt og rólega verið að færa sig yfir í Airbus með því að velja þotur frá evrópska flugvélarisanum og hafnað nokkrum tilboðum frá Boeing sem varð til þess að pöntunarlisti Delta til Boeing hefur endaði á núlli.
Næstu þotur munu allar koma frá Airbus en Delta Air Lines á von á yfir 260 nýjum Airbus-þotum
af gerðinni Airbus A220, Airbus A321, A321neo, Airbus A330neo og Airbus A350.
Delta hefur í dag 917 flugvélar í flotanum sem gerir félagið eitt stærsta flugfélag í heimi er kemur að
flugvélafjölda en 58% flotans samanstendur af flugvélum frá Boeing.
Delta Air Lines lagði inn sína síðustu pöntun til Boeing í ágúst árið 2011 í eitt hundrað þotur af gerðinni
Boeing 737-900ER auk þess sem félagið bætti tíu þotum við pöntunina í desember árið 2015 og aðrar
tíu til viðbótar í apríl 2017.
Nýjasta og síðasta Boeing 737-900ER þota Delta er einnig ein af þeim síðustu Boeing 737NG þotum sem eru að koma
út af færibandinu hjá Boeing í verksmiðjunum í Renton.
N930DZ er síðasta flugvélin sem Delta Air Lines tekur við frá Boeing en félagið hefur engar pantanir lengur inni hjá Boeing í fyrsta sinn í marga áratugi
Þetta er í fyrsta sinn sem Delta Air Lines hefur lokað dyrnar fyrir Boeing en félagið fékk fyrstu þotuna
frá framleiðandanum árið 1970 sem var júmbó-þota af gerðinni Boeing 747-100.
Detla Air Lines gaf sér góðan tíma í að ákveða hvort félagið myndi leggja inn pöntun í Boeing 737 MAX eða
Airbus A320neo og á endanum varð Airbus fyrir valinu en félagið lagði inn pöntun í 100 þotur af gerðinni A321neo
í desember árið 2017 og hefjast afhendingar á þeim á næsta ári.
Ein af þeim mörgum Airbus A321neo þotum sem Delta Air Lines á von á því að fá á næstu árum
Þá pantaði Delta 95 eintök af CSeries-þotunni hjá Bombardier sem síðar varð Airbus A220 og þá á félagið
eftir að fá 43 eintök af Airbus A321 þotum sem félagið notar til að skipta út gömlum McDonnell Douglas MD88 og
MD-90 þotum.
Þá varð það mikið reiðarslag fyrir Boeing er Delta lagði inn pöntun árið 2014 til Airbus í 50 breiðþotur af gerðinni
Airbus A330neo og Airbus A350 og hafnað tilboði Boeing í Boeing 777 og Boeing 787.
Delta Air Lines hefur verið viðskiptavinur Boeing frá því félagið tók við sinni fyrstu Boeing 747-100 júmbó-þotu árið 1970
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.