flugfréttir
Bjørn Kjos segir af sér sem framkvæmdarstjóri Norwegian
- „Einn áhrifamesti frumkvöðull í Evrópu“
Bjørn Kjos hefur verið framkvæmdarstjóri Norwegian frá árinu 2002
Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian og einn af stofnendum félagsins, hefur ákveðið að stíga til hliðar og mun hann yfirgefa forstjórastólinn eftir að hafa stjórnað flugfélaginu norska í 17 ár.
Kjos, sem er 72 ára í dag, mun halda áfram að starfa fyrir Norwegian og ætlar hann að vera
flugfélaginu innan handar sem ráðgjafi en Kjos sagði á blaðamannafundi í gær
að enginn ætti standa í því að stýra flugfélagi komin á hans aldur.
Norwegian var stofnað árið 1993 og hóf félagið starfsemi sína með aðeins fjórar flugvélar en flugfloti Norwegian í dag
telur 162 þotur sem fljúga til áfangastaða í fjórum heimsálfum og starfa um 11 þúsund manns hjá félaginu.
Norwegian ruddi leiðina að lágfargjaldaflugi yfir Atlantshafið milli Ameríku og Evrópu árið 2013 með tilkomu Norwegian Long Haul en þó ekki þrautalaust og hefur félagið
dregið úr umsvifum sínum að undanförnu í bili vegna breytinga á efnahagsumhverfi og vandamála með Boeing 737 MAX þoturnar.
Norwegian hefur tekið við 18 Boeing 737 MAX þotum og segir Kjos að kyrrsetning þeirra eigi eftir að hafa mikil áhrif á afkomu félagsins árið 2019
„Ég er viss um að stjórnin á eftir að finna framkvæmdarstjóra sem á eftir að smellpassa í forstjórastólinn til að leiða félagið áfram
inn í framtíðina ásamt teyminu sem stjórna félaginu“, sagði Kjos í gær sem hefur verið framkvæmdarstjóri félagsins frá árinu 2002.
Krefjandi verkefni framundan fyrir nýjan framkvæmdarstjóra
Geir Karlsen, fjármálastjóri Norwegian, mun taka við formennsku tímabundið á meðan leit stendur yfir að nýjum
framkvæmdarstjóra og þá mun Niels Smedegaard, forstjóri félagsins, einnig aðstoða Karlsen við að fylla skarð Kjos fyrst um sinn.
„Hlutverk Kjos í velgengni félagsins hefur verið ómetanlegt og hefur hann haft sýn á rekstri lágfargjaldafélags sem á sér enga hliðstæðu.
Honum hefur tekist með miklum metnaði er kemur að nýsköpun að bjóða öllum upp á ódýr flugfargjöld og hefur honum tekist að breyta því hvernig
fólk ferðast í dag með flugi“, segir Smedegaard sem telur Kjos vera einn áhrifamestan frumkvöðul í Evrópu í dag.
Flugsérfræðingar segja að það sé krefjandi starf sem bíður nýs framkvæmdarstjóra Norwegian þar sem félagið er að ganga í gegnum
viðkvæma tíma sem hefur orðið öðrum flugfélögum að falli á borð við Monarch og Air Berlin.
Norwegian hefur tekið við 18 Boeing 737 MAX þotum sem eru allar kyrrsettar líkt og aðrar þotur í heiminum sömu tegundar en fram kemur að kyrrsetning þeirra eigi eftir að hafa mikil áhrif á afkomu félagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.