flugfréttir
Flugstjóri missti meðvitund í aðflugi að Moskvu
Fokker 100 þota Montenegro Airlines á flugvellinum í Munchen í vikunni
Flugstjóri á Fokker 100 þotu frá flugfélaginu Montenegro Airlines veiktist og missti meðvitund í vikunni í aðflugi að Domodedovo-flugvellinum í Moskvu í Rússlandi.
Flugvélin var á leiðinni frá borginni Tivat til Moskvu sl. þriðjudag með 85 farþega innaborðs
og fimm manna áhöfn þegar atvikið átti sér stað.
Vélin var nýbúin að hefja lækkun þegar flugstjórinn veiktist og missti hann meðvitund
skömmu síðar í aðfluginu.
Aðstoðarflugmaðurinn lýsti yfir neyðarástandi og tók hann við stjórn vélarinnar og ákvað
hann að lenda þotunni í borginni Kaluga sem staðsett er í um 135 kílómetra fjarlægð
suður af Moskvu.
Flugmaðurinnn lenti þotunni skömmu síðar en flugstjórinn komst aftur til meðvitundar
eftir lendingu. Nokkrir sjúkrabílar biðu vélarinnar en í ljós kom að ekki þurfti að flytja
flugstjórann á sjúkrahús.
Flugvélin var á flugvellinum í Kaluga í 9 klukkustundir þar til henni var flogið yfir
til Domodedovo-flugvallarins í Moskvu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.