flugfréttir
Qatar Airways pantar átján einkaþotur frá Gulfstream
- Fara í ört stækkandi flota Qatar Executive
Gulfstream G650ER einkaþota í litum Qatar Executive
Qatar Airways hefur lagt inn pöntun til Gulfstream Aerospace í 18 einkaþotur en tilkynnt var um pöntunina við athöfn sem fram fór í Hvíta Húsinu fyrir helgi.
Pöntunin samanstendur af fjórtán Gulfstream G650ER þotum og fjórum G500 einkaþotum og munu vélarnar
fara í flota Qatar Executive, dótturfélags Qatar Airways, en pöntunin er metin á 125 milljarða króna.
Qatar Executive hefur verið viðskiptavinur Gulfstream frá árinu 2014 og hefur félagið 18 einkaþotur í flotanum af gerðinni Bombardier Challenger 605, Global 5000, Gulfstream G650ER og G500.
Qatar Executive var stofnað á flugsýningunni Paris Air Show í júní árið 2009 og hefur fyrirtækið annast leiguflug með einkaþotum
auk þess sem það sér um viðhald og býður upp á viðgerðarþjónustu á einkaþotum í nýju flugskýli sem tekið var í notkun
á flugvellinum í Doha árið 2011.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.