flugfréttir

„737-8200“ ekki nýtt nafn á Boeing 737 MAX

15. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:09

Boeing 737 MAX 200 þota Ryanair

Ljósmynd af nýrri Boeing 737 MAX þotu fyrir Ryanair hefur verið dreift á samfélagsmiðlum undanfarinn sólarhring með áletrunina 737-8200 framan á nefi vélarinnar.

Myndin hefur vakið nokkra athygli og hafa nokkrir erlendir fjölmiðlar fjallað um hvort þarna sé komið nýtt nafn á MAX-þoturnar þar sem á öðrum þotum hefur staðið ýmisst „Boeing 737 MAX 8“ eða „Boeing 737 MAX 9“.

Fréttavefurinn Flight Global greinir frá því að þarna sé ekki nýtt nafn á ferðinni heldur sé um að ræða vísann í undirtegund á MAX-þotu Ryanair sem er frábrugðin öðrum Boeing 737 MAX þotum þar sem félagið pantaði sérstaka lágfargjaldaútgáfu af 737 MAX 8 sem nefnist Boeing 737 MAX 200.

Styttingin á nafninu er því 737-8200 sem var fyrst skráð í gögnum hjá flugmálayfirvöldum í Evrópu (EASA) árið 2015, næstum tveimur árum áður en fyrsta Boeing 737 MAX þotan var afhent.

737-8200 kemur fram í skjölum hjá EASA og FAA árið 2015

Nafnagiftina 737-8200 má meðal annars sjá í skjölum á vegum FAA og EASA og þar á meðal á korti af sætaröðum í farþegarýminu á Boeing 737 MAX 200 sem kemur með sætum fyrir 200 farþega en í sumum tilvikum með sætum fyrir 197 farþega.

Ryanair var fyrsta flugfélagið til þess að leggja inn pöntun í Boeing 737 MAX 200 er Boeing kynnti sérstaka útgáfu fyrir lágfargjaldafélög fyrst til leiks árið 2014.

Asíska lágfargjaldafélagið VietJet hefur einnig undirritað samkomulag um kaup á 100 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 200 og þá hefur rússneska flugfélagið Pobeda lýst yfir áhuga á þessari gerð af þotu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga