flugfréttir
Von á niðurstöðum á úttekt á vottunarferli FAA í haust
Robert Sumwalt, formaður samgönguöryggisnefndar Bandaríkjanna (NTSB)
Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hefur tilkynnt að í haust verða birtar niðurstöður ásamt athugasemdum varðandi vottunarferli meðal bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sem hefur verið til rannsóknar eftir tvö flugslys þar sem Boeing 737 MAX átti í hlut.
Robert Sumwalt, formaður NTSB, tilkynnti þetta á bandaríska þinginu í gær en stofnunin hefur verið
að fara yfir þá leið sem FAA fór er stofnunin gaf út vottun fyrir Boeing 737 MAX en bandarísk flugmálayfirvöld hafa verið ásökuð
um að hafa slakað á öryggiskröfum á sínum tíma varðandi vottunina á Boeing 737 MAX.
NSTB hefur verið að fara yfir þá verkferla sem bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) störfuðu
eftir við vottunina en flugmálayfirvöld vestanhafs hafa verið harðlega gagnrýnd og hafa spurningar vaknað varðandi hvernig
FAA vinnur að vottun nýrra flugvéla sem eru að koma á markað og hvernig unnið er eftir verkferlum því tengdu.
Flugmaðurinn Chesley „Sully“ Sullenberger sagði í júní sl. að kerfið sem FAA vinnur eftir í dag er kemur að vottunarferli sé ekki að
virka og hafi það kerfi brugðist flugiðnaðinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.