flugfréttir

Hætta flugi um Newark-flugvöll vegna vandans með 737 MAX

- Hagnaður Southwest Airlines jókst þrátt fyrir kyrrsetningu á MAX-þotunum

27. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 15:08

Boeing 737-700 þota Southwest Airlines á Newark-Liberty flugvellinum í New Jersey

Southwest Airlines hefur ákveðið að hætta að fljúga um Newark-Liberty flugvöllinn í New Jersey frá og með 3. nóvember vegna skorts á flugvélum í kjölfar kyrrsetninga á Boeing 737 MAX þotunum.

Southwest Airlines flýgur í dag frá Newark-flugvellinum til Austin, Baltimore, Chicago-Midway, Denver, Nashville, Oakland, Orlando, Phoenix, St. Louis og San Diego.

Flugfélagið segist eiga von á því að starfsemi félagsins eigi eftir að dragast saman um allt að 2% milli ára eftir að árið 2019 er á enda vegna kyrrsetningarinnar á Boeing 737 MAX en upphaflega var búist við 5% aukningu í umsvifum og sætaframboði á árinu.

„Við erum að taka viðeigandi ráðstafanir til að lágmarka áhrifin með því að hagræða flugflotanum“, segir Gary Kelly, framkvæmdastjóri Southwest Airlines. - „Við munum hætta starfseminni á Newark-Liberty flugvellinum og endurskoða viðveru okkar á LaGuardia-flugvellinum í New York“.

Kelly segir að fjárhagsleg afkoma félagsins er kemur að Newark-flugvellinum hafi verið undir væntingum og hefur félagið boðið starfsfólki sínu að færa sig á aðrar starfsstöðvar.

Rekstartekjur Southwest Airlines á öðrum ársfjórðungnum drógust saman um 21 milljarð króna en þrátt fyrir það þá jókst hagnaður félagsins um 973 milljónir króna milli ára og var 90,1 milljarður samanborið við 89,1 milljarð árið 2018.

Southwest hefur ákveðið að fresta áætlunum sínum um einn mánuð til viðbótar varðandi Boeing 737 MAX og gerir félagið því ekki ráð fyrir MAX-þotunum í leiðarkerfinu fyrr en 5. janúar 2020.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga