flugfréttir
Flugvél hlekktist á í flugtaki í Rangárþingi
Slysið átti sér stað á þriðja tímanum í dag
Tilkynnt var um flugslys á þriðja tímanum í dag á flugvellinum á Haukadalsmelum í Rangárþingi er lítilli flugvél hlekktist á í flugtaki.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi og voru björgunarsveitir kallaðar út vegna þessa.
Tilkynning barst um slysið kl. 14:23 og eru björgunarlið komið á staðinn en fram kemur að flugmaðurinn
var sá eini sem var um borð í vélinni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út en henni svo snúið við er í ljós kom að ekki var þörf á henni
í ljósi aðstæðna.
Flughátíðin 2019 fer fram þessa á Haukadalsmelum sem er ein af flughátíðum sumarsins á landinu
en hátíðin fer fram að þessu sinni í 30. skipti á Haukadalsmelum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.