flugfréttir

Sviffluga rakst á flugvél sem var með hana í togi í Kanada

- Tveir létust í svifflugunni

29. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:58

Báðir þeir sem voru um borð voru vanir svifflugmenn í svifflugklúbbnum

Tveir létust er svifflugvél rakst á flugvél sem var að toga hana á loft skammt frá flugklúbbi nálægt bænum Black Diamond í Alberta-ríki í Kanada fyrir helgi.

Tveir voru um borð í svifflugunni, sem var af gerðinni Schleicher ASK 21, og létust þeir báðir en hún rakst á flugvélina sem var að draga hana á loft sem er af gerðinni Cessna C182 Skylane en flugmaður þeirrar vélar sakaði ekki.

Slysið átti sér stað sl. föstudag en aðilar frá rannsóknardeild flugslysa í Kanada komu í gær á staðinn og hófu vettvangsrannsókn.

Svifflugvélin var í eigu svifflugsklúbbsins Cu Nim Gliding Club og hefur flugklúbburinn tilkynnt að starfsemin muni liggja niðri tímabundið vegna slyssins en báðir þeir sem voru í svifflugunni voru meðlimir klúbbsins og vanir svifflugmenn.

Cessna Skylane flugvélin á akri eftir slysið en sú vél er óskemmd

Jason Acker, formaður svifflugsamtak Alberta-ríkis og svifflugskennari í svifflugsklúbbinum í Edmonton, segir að mjög sjaldgæft sé að sviflugvél rekist í þá flugvél sem er með hana í togi en flugvélar séu oftast með árekstrarvara til að vara við of mikilli nálægð við hvor aðra en þær voru þó ekki með slíkan búnað í þessu tilviki. Acker segir að flugslys í sviffluginu séu mjög sjaldgæf en þau geti þó átt sér stað.

Svifflugssamfélagið á svæðinu telur um 200 meðlimi og segir Acker að þetta undirstriki mikilvægi þess að skoða öryggismál þrátt fyrir að þau hafi ávalt verið mjög góð hjá klúbbnum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga