flugfréttir
Panta sextíu Airbus A220 þotur
- Stefna á að hætta með risaþotuna Airbus A380
Tölvugerð mynd af Airbus A220 í litum Air France
Air France hefur tilkynnt um pöntun í allt að 120 þotur af gerðinni Airbus A220 sem áður hétu CSeries, framleiddar af Bombardier, en félagið hefur gert samkomulag við Airbus um 60 slíkar þotur með möguleika á 30 þotum til viðbótar og kauprétti á öðrum þrjátíu þotum ef til þess kemur.
Með Airbus A220 þotunum ætlar Air France að skipta út eldri þotum af gerðinni Airbus A319 og A318 sem eru komnar
til ára sinna en fyrstu A220 þoturnar verða afhentar í september árið 2021.
Þoturnar eru allar af stærri gerðinni, A220-300 (CS300), og segir Benjamin Smith, framkvæmdarstjóri Air France-KLM,
að A220 sé klæðskerasniðin að leiðarkerfi Air France bæði í innanlandsflugi og á Evrópuleiðum.
Airbus A220 þoturnar eiga að leysa af hólmi Airbus A318 og A319 þoturnar
Air France hefur í dag átján Airbus A318 þotur með meðalaldur upp á 14 ár og 33 Airbus A319 þotur sem hafa aldur
upp á 18 ár að meðaltali.
„Nýju þoturnar munu bjóða farþegum upp á aukin þægindi á stuttum og meðallöngum flugleiðum og þægilegri
aðstöðu fyrir flugmenn með nýjustu tækni í stjórnklefa í flugleiðsögu“, segir Smith.
Airbus A380 fer úr flotanum fyrir árið 2022
Þá kynnti félagið einnig í dag áform sín um að vera búið að losa sig við Airbus A380 innan þriggja ára
og er stefnt að því að risaþotan verði farin úr flugflota Air France fyrir árið 2022.
Air France ætlar að losa sig við risaþoturnar úr flotanum fyrir árið 2022
Air France hefur í dag tíu risaþotur í flotanum en þrjár munu yfirgefa flotann á næstunni og munu hinar sjö því
fara úr flotanum á næsta ári og árið 2021.
Air France leitar nú að „ákjósanlegri“ flugvél til að leysa af hólmi risaþotuna A380 þótt sú þota eigi engan sinn líka
en von var á því að félagið myndi leggja inn pöntun í stórar breiðþotur á flugsýningunni í París í júní sl.
Flugfélagið franska er ekki það eina sem stefnir á að hætta með risaþoturnar því Qantas og Qatar Airways hafa bæði
tilkynnt að félögin ætli að leggja Airbus A380 og hætta með þær í rekstri.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.