flugfréttir
Ryanair gæti þurft að segja upp yfir 500 flugmönnum
- Uppsagnir á allt að 1.500 starfsmönnum óhjákvæmilegar
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair
Ryanair varar við umfangsmiklum niðurskurði á næstu vikum í formi uppsagna sem hefjast í haust en lágfargjaldafélagið írska segir að félagið hafi of marga flugmenn og gæti þurft að segja upp yfir 500 flugmönnum og yfir 400 flugfreyjum og flugþjónum.
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, hefur beðið starfsfólk sitt að búa sig undir uppsagnir á næstu vikum
og sé von á nánari upplýsingum um uppsagnirnar fyrir lok ágúst en Ryanair segir að svo gæti farið að það þurfi
að segja upp allt að 1.500 starfsmönnum í heildina.
Uppsagnirnar verða að miklu leyti tilkomnar vegna vandamálsins með Boeing 737 MAX en Ryanair gerði ráð fyrir að
vera komið með yfir 50 Boeing 737 MAX 200 þotur í umferð næsta sumar en félagið á aðeins von á brot af þeim fjölda
fyrir sumarið 2020.
O´Leary segir að Ryanair þurfi á 600 færri flugfreyjum og flugþjónum á að halda fyrir sumarið 2020 eins og staðan
er í dag. Framkvæmdarstjórinn segir að uppsagnir séu óhjákvæmilegar en félagið ætli samt að gera allt sem það getur til
þess að lágmarka uppsagnir.
Uppsagnirnar munu hefjast í september og í október og svo aftur
mun koma til enn frekari uppsagna eftir jól og áramót.
Afkoma Ryanair á 2. ársfjórðungi versnaði um 21% samanborið við sama tímabil í fyrra og segir O´Leary að
orsök þess megi rekja til hækkunar á eldsneytisverði, minni eftirspurnar eftir flugsætum og aukinnar samkeppni
sem hefur komið af stað verðstríði í lágfargjaldarflugi.
Ryanair lýsti því yfir sl. mánudag að laun framkvæmdarstjórans, O´Leary, yrðu lækkuð um helming niður í 5,5 milljón
króna á mánuði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.