flugfréttir

Orrustuþota brotlenti í Star Wars gljúfrinu

- F/A-18 Super Hornet þota flaug á kletta fyrir framan hóp ljósmyndara

1. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:25

Næstum daglega má sjá orrustuþotur fljúga í gegnum gljúfrin nálægt Dauðadalnum

Leit stendur yfir af herflugmanni eftir að orrustuþota af gerðinni F/A-18 Super Hornet brotlenti í „Star Wars“ gljúfrinu í Dauðadalnum í Kaliforníu í gær.

Sjö manns særðust á jörðu niðri eftir að hafa fengið brak í sig en sá hópur var í skoðunarferð í gilinu og var að taka landslagsmyndir er herþota birtist skyndilega og flaug beint inn í klettana.

Það var starfsmaður á ferðamannastað í 16 kílómetra fjarlægð sem tilkynnti um atvikið er hann sá svartan sveppalaga reykjarmökk stíga til himins í fjarska en að sögn hans sést yfirleitt aldrei neitt ský á himni á þessum stað í eyðimörkinni.

Herþota á flugi í gljúfrinu nálægt Dauðadalnum í Kaliforníu

Staðurinn er bæði vinsæll meðal ljósmyndara auk flugáhugamanna sem leggja oft leið sína í gljúfrið til þess að sjá orrustuþotur fljúga lágflug í gegnum gilið.

Bandaríski herinn og erlendar herdeildir senda oft herflugmenn til æfinga í gljúfrinu sem heitir Regnbogagljúfrið en herflug í gilinu má rekja aftur til tíma seinni heimstyrjaldarinnar.

Lágflug herflugvéla í gegnum gljúfrið er nánast daglegur viðburður og geta flugáhugamenn séð nánast svipbrigðin í andliti flugmannana er þeir þeysast í gegnum gilið.

Að sögn talsmanns bandaríska sjóhersins þá var flugmaður herþotunnar í reglubundinni æfingarför í dalnum en björgunarteymi hefur ekki enn tekist að finna flugmanninn sem talinn er hafa skotið sér út í fallhlíf.

T-38 Talon æfingarherþota á flugi á svipuðum slóðum í Regnbogagljúfrinu







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga