flugfréttir

Fyrsta afríska flugfélagið til að fá afhenta Airbus A320neo

6. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 09:25

Airbus A320neo þota Air Seychelles

Air Seychelles hefur tekið við sinni fyrstu Airbus A320neo þotu og er flugfélagið fyrsta félagið í Afríku til að taka í notkun A320neo.

Air Seychelles er þjóðarflugfélag Seychelles-eyjanna í Indlandshafi en félagið tekur vélina á leigu frá flugvélaleigunni China Development Bank Financial Leasing í Kína (CDB Aviation).

Þotan, sem verður eina Airbus A320neo þotan í flota Air Seychelles, kemur með nýrri kynslóð af afþreyingarkerfi um borð sem félagið kallar „seyStream“ sem er WiFi-skemmtikerfi sem leyfir farþegum að tengjast neti með sínu eigin snjalltækjum auk ókeypis aðgangi að sjónvarpsþáttum og bíómyndum.

Frá móttökuathöfn er Air Seychelles fékk fyrstu A320neo þotuna afhenta

A320neo þotan er fyrsta nýja þotan sem Air Seychelles tekur í notkun í 18 ár en seinasta þota sem félagið fékk var af gerðinni Boeing 767 sem afhent var árið 2001.

Flugfloti Air Seychelles samanstendur í dag af einni A320neo þotu, tveimur Airbus A320 þotum og fimm DHC-6-400 Twin Otter vélum en félagið hefur hætt langflugi til Parísar og því ekki lengur með breiðþotur í flotanum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga