flugfréttir

Boeing stefnir á að 737 MAX fljúgi á ný í haust

- Hafa framkvæmt yfir 500 prófanir á hugbúnaðaruppfærslum

6. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 11:06

Boeing 737 MAX þoturnar hafa verið kyrrsettar í 5 mánuði í dag

Boeing hefur framkvæmt tæplega 500 prófanir á uppfærslum á hugbúnaði á Boeing 737 MAX þotunni sem í dag hefur verið kyrrsett í tæpa 5 mánuði en Dennis Muilenberg, framkvæmdarstjóri Boeing, sagði í gærkvöldi að vonast er til þess að hún muni hefja sig á flug að nýju á fjórða ársfjórðungi þessa árs.

Muilenburg tók það fram í gær á Global Business Travel Association ráðstefnunni í Chicago að hann hafi meðal annars flogið sjálfur um borð í tveimur tilraunaflugferðum og segir hann að starfsmenn Boeing ætla að stefna á að gera það sama.

„Við vitum að traust okkar hefur hlotið skaða sl. mánuði og erum við að vinna hörðum höndum að því að vinna til baka það traust sem almenningur hafði á okkur“, sagði Muilenburg í gær.

Dennis Muilenburg kom fram á Global Business Travel Association ráðstefnunni í Chicago í gær þar sem hann svaraði spurningum um Boeing 737 MAX

Boeing segir að verið sé að einblína á allar helstu uppfærslur í þeim tilgangi að gera Boeing 737 MAX þotuna eins örugga og mögulegt er.

Muilenburg segir að Boeing stefni á að ljúka öllum prófunum á Boeing 737 MAX fyrir september og séu tilraunir með hugbúnaðaruppfærslu núna á lokastigi.

„Við höfum smíðað flugvélar í heila öld og allt sem hefur áhrif á það traust sem við höfum unnið okkur inn á þeim tíma særir okkur mikið sem fyrirtæki og erum við því staðráðnir í því að endurheimta traust almennings og farþega. Við munum ekki hætta fyrr en því markmiði er náð“, segir Muilenburg.

„Við erum á áætlun með að afhenda vottunarpakkann formlega til bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) í september og vonumst við til að Boeing 737 MAX fái aftur leyfi til þess að hefja sig á loft á fjórða ársfjórðungi og verður hún vonandi ein öruggsta farþegaþota eftir alla þessa vinnu“, sagði Muilenberg.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga