flugfréttir
Tveir flugmenn hjá United féllu á áfengisprófi í Glasgow
Aflýsa þurfti fluginu frá Glasgow til Newark sl. laugardag eftir að ljós kom að báðir flugmennirnir féllu á áfengisprófi
Tveir flugmenn hjá United Airlines voru handteknir á flugvellinum í Glasgow um helgina eftir að þeir féllu báðir á áfengisprófi skömmu áður en þeir áttu að fljúga Boeing 757 þotu yfir Atlantshafið til Newark-flugvallarins í Bandaríkjunum.
Flugmennirnir, sem eru 45 ára og 61 árs, eru í haldi skosku lögreglunnar og er von á að þeir mæti í réttarsal í dag í Skotlandi.
United Airlines segir í yfirlýsingu vegna málsins að báðir flugmennirnir hafi verið leystir frá störfum og vinni flugfélagið í nánu
samstarfi við lögregluyfirvöld í Skotland vegna málsins.
Skoska lögreglan var kölluð til flugvallarins í Glasgow klukkan 7:35 að morgni laugardagsins 3. ágúst sl. en áætluð brottför til Newark-Liberty
flugvallarins var klukkan 9:00.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tveir flugmenn frá United Airlines falla á áfengisprófi á flugvellinum í Glasgow en það átti
sér stað þann 26. ágúst árið 2016.
Annar flugmaðurinn í það skiptið, Paul Grebenc, 35 ára, hlaut 10 mánaða fangelsisdóm eftir að áfengi mældist í blóði hans og flugstjórinn, Carlos
Roberto Licona, 45 ára, hlaut 15 mánaða dóm.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.