flugfréttir
EasyJet gagnrýnt fyrir sæti með engu sætisbaki
Flugvélin var á leið frá London Luton til Genfar í Sviss þegar farþegi um borð gaf því gaum að einn farþegi sat í sæti með engu sætisbaki
Breska lágfargjaldafélagið easyJet hefur svarað fyrir þá gagnrýni sem félagið hefur fengið á sig eftir að ljósmynd var birt á samfélagsmiðlum í gær sem sýnir konu sitja í sæti sem hafði ekkert sætisbak.
Myndin var tekin um borð í Airbus A319 þotu félagsins skömmu fyrir brottför frá London Luton til Genf og má sjá hvar kona situr í sætaröð
þar sem sætisbakið vantaði á heila sætaröð.
Myndin fór eins og eldur um sinu bæði á Twitter og Facebook en í yfirlýsingu frá easyJet kemur fram að konan hafi verið færð undir eins
í annað sæti og hafi hún því ekki setið á þessum stað nema fyrst þegar hún kom um borð í vélina.
„Engin farþegi fékk að sitja í þessu sæti þar sem þau voru ekki nothæf á meðan ekki var búið að skipta um þau. Öryggi er ávalt í forgangi
hjá okkur“, segir í yfirlýsingu frá félaginu.
Twitter-notandinn Matthew Harris tók myndina og setti á samfélagsmiðla þar sem hann „taggar“ bæði easyjet og Alþjóðasamtök
flugfélaganna (IATA) og segir að easyJet hafi náð að slá út Ryanair með baklausa sætinu.
EasyJet svaraði í ummælum við myndina þar sem félagið bað Harris um að fjarlægja hana á meðan félagið rannsakar málið en tekur
fram að konan hafi verið færð í annað sæti um leið og allir farþegarnir voru komnir um borð.
Yfir 6.000 notendur dreifðu myndinni áfram á Twitter
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.