flugfréttir

Aldrei eins margir farþegar með Icelandair í einum mánuði

- 564.000 flugu með félaginu í júlí

7. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:21

„Vatnajökull“, Boeing 757 þota Icelandair á flugvellinum í Zurich þann 29. júlí sl.

Icelandair sló farþegamet í seinasta mánuði þegar 564.000 farþegar flugu með félaginu og hefur farþegar aldrei verið eins margir í einum mánuði í sögu félagsins.

Þetta er 9% fleiri farþegar en félagið flutti í júlí 2018 þegar 519.000 farþegar flugu með félaginu en Icelandair rauf 500 þúsund farþegamúrinn í fyrsta sinn árið 2017.

Framboð jókst um 8% í júlímánuði og sætanýtingin mældist 82,9% samanborið við 85,3 prósent í júlí 2018 en leiðakerfisbreytingar sem gerðar voru vegna kyrrsetningar MAX véla félagsins skömmu fyrir ferðatímann höfðu talsverð neikvæð áhrif á sætanýtingu í júlí.

Farþegum til Íslands fjölgaði um 32% eða um ríflega 60 þúsund og hefur félagið aldrei flutt jafnmarga farþega til landsins í júlímánuði eins og í ár, eða samtals tæplega 251 þúsund.

Farþegafjöldinn í júlí síðastliðin 6 ár hjá Icelandair

Farþegum fjölgaði einnig á heimamarkaðinum frá Íslandi, eða um 23%, sem nam rúmlega 11 þúsund farþegum. Þessi aukning farþega til og frá Íslandi er meðal annars vegna áherslu félagsins á að lágmarka áhrif kyrrsetningar Boeing 737 MAX véla félagsins og breytinga í samkeppnisumhverfinu með því að tryggja flugframboð á þessum mörkuðum.

Atlantshafsmarkaðurinn var áfram stærsti markaður félagins í júlí með um 45% af heildarfarþegafjölda þrátt fyrir að fjöldi skiptifarþega hafi dregist saman um 10% á milli tímabila.

Komustundvísi í leiðakerfi félagsins í júlí var 71% samanborið við 51% í júlí á síðasta ári en góður árangur hefur náðst í að bæta stundvísi þrátt fyrir minni sveigjanleika í flugáætlun félagsins vegna kyrrsetningar MAX véla félagsins.

Farþegar Air Iceland Connect voru um 28 þúsund í júlí og fækkaði um 10%, sem er í takt við samdrátt í framleiðslu á milli ára. Sætanýting nam 72,1% og dróst örlítið saman á milli ára.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga